Bullarar hafa þjóðina að fífli

bullUmræðan í dag um ákvörðun forseta að staðfesta ekki nýju Icesave lögin einkennist af miklu bulli eins og umræðan sem hefur farið á undan. Það mætti halda að þjóðin sé að búa sig undir það að kjósa um hvort eigi að greiða fyrir Icesave eða ekki. Lögin sem forseti kýs að staðfesta ekki eru breytingartillögur fyrir áður samþykkt lög. Við ákvörðun forseta í dag falla breytingartillögur úr gildi og áður samþykkt lög standa. Sjá breytingartillögur sem falla nú úr gildi hér og áður staðfest lög hér. S.s. þjóðin fær nú að kjósa um breytingartillögurnar. Til hamingju Ísland!
mbl.is Sundrung ekki af hinu góða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Vonað að þetta bullmerki eigi við innihald greinarinnar, því hún er bull frá upphafi til enda. Hér er um nýtt frumvarp að ræða og það hefur tekið gildi fram að þjóðaratkvæðum, þar sem það verður fellt. Fyrra frumvarpið fellur sjálfkrafa úr gildi við gildistöku þessa og það gerðist um leið og atkvæðagreiðslu um það lauk. Check your facts.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.1.2010 kl. 23:16

2 Smámynd: Fall

@Jón Steinar - Bull.

Sýndu mér hvar segir í nýju lögunum að þau eldri falla úr gildi. Hvernig ætlarðu að lesa nýju lögin, sem segja bara hvað breytist í eldri lögunum, ef eldri lögin er fallin úr gildi? Facts? Check!

Fall, 12.1.2010 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband