4.11.2009 | 13:16
Um ESB - bull, bull og meira bull
Það er ekki nema von að íslensk umræða um ESB skuli vera á svo lágu plani sem raunin er þegar fréttaflutningur um sambandið byggist á jafnmiklu bulli og finnst í frétt Heimis Más Péturssonar um Lissabon sáttmálann á Vísir.is í dag. Helsta bullið:
- "Ný embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar..." - Forsetaembætti Framkvæmdastjórnarinnar (e. The Commission) hefur verið til síðan 1957 þegar Framkvæmdastjórnin var stofnuð. Lissabon sáttmálin stofnar nýtt forsetaembætti leiðtogaráðsins.
- "Ný stjórnarskrá..." - Evrópusambandið hefur aldrei haft stjórnarskrá og tilraun til þess að innleiða stjórnarskrá fór út um þúfur þegar aðildarlönd höfnuðu fyrri útgáfu af Lissabon sáttmálanum sem hefði innleitt stjórnarskrá.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2009 kl. 00:59 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.