Bullandi heimska

bullYfibullarinn sem reynir að telja fólki trú um að óskilgreindur textareitur á nafnamiðlara segi til um hver situr fyrir framan einhverja tölvu talar um "að gera út á heimsku fólks". Kannski meiri hræsni en bull.

AMX býr til nýtt land

bull

AMX hefur búið til nýtt land, Evruland, til að þurfa ekki að benda á að atvinnuleysi í löndum evrusvæðisins er frá 3,3% og upp í 18,1%.


Og aftur - forseti hvers?

bullVoðalega smellið að ýja að því í fyrrirsögn að Bruton ætli sér að verða forseti ESB. Tja, ef það embætti væri, eða mundi verða, til. Fyrir þá sem hafa nennu til að lesa þessa ekki-frétt er þó greinilegt að Bruton er að hugsa um embætti forseta leiðtogaráðsins. Meikar meira sens þar sem embætti forseta ESB er ekki til og ólíklegt að það verði til í nánustu framtíð. Alla vega ekki fyrir 2012, þegar heimurinn á víst að farast hvort eð er.
mbl.is Bruton gegn Tony Blair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirbullari vikunnar!

bullbullbull

 

 

 

 

 

 

 

 

Haukur Nikulásson. Þarf nokkuð frekari skýringar?


Tölfræðibull Heimssýnar

bullHeimssýn - hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum sagði nýlega frá því á vef félagsins að "mikill meirihluti [íslendinga] vill ekki evru og Evrópusamband". Túlkun þeirra á niðurstöðum könnunar Pressunnar segir í raun lítið annað en að félagar Heimssýnar þurfa að komast í upprifjunnarkúrs í tölfræði.

Í könnuninni var spurt "Hvaða gjaldeyrisfyrirkomulag telur þú heppilegast fyrir Ísland?" Það er hvergi spurt um hvað svarendur vilja ekki.

Svo segja þeir líka "…vilja 55% Íslendinga að í peningamálum þjóðarinnar verði mörkuð stefna til framtíðar utan Evrópusambandsins með einum eða öðrum hætti." Það er hvergi spurt um "framtíð utan Evrópusambandsins".

Ég hef litla trú á því að félagar Heimssýnar lesi hugsanir. Þetta flokkast því sem bull.

Björn Bjarna bullar

bullBjörn Bjarnason sparar ekki bullið í nýlegum pistli á amx.is, fremsta fréttaskýringavef Íslands. Þar reynir hann að telja okkur trú um að stjórnin sé að leynimakkast með okkur í ESB - vill ekki birta spurningarnar frá Brussel og svörin á íslensku og svoleiðis. En Björn Bjarna, hafandi verið ráðherra, veit nákvæmlega hvers eðlis þessar spurningar eru og svörin. Þessar upplýsingar sem er verið að senda til Brussel nú eru þau sömu og við höfum verið að senda í mörg ár (ég vann einu sinni við að taka saman svona upplýsingar). Þetta eru lýsingar á reglugerðum, lagaumhverfi og gögnum frá Hagstofunni - ekkert stefnumótandi og ekkert merkilegt. Eiginlega allt byggist á þýddu íslensku efni. Vill Björn Bjarna s.s. að stjórnin þýði aftur á íslensku það sem það er nýbúið að þýða á ensku? Góð leið til að spara og fyrirbyggja misskilning. Tvær flugur í einu höggi!

Fólk þarf ekki að lesa ensku til að vita hvað var sent til Brussel. Það þarf bara að vita hvað er í gangi í landinu.

Spillingin byrjaði víst ekki fyrr en 2009

bullBullari á AMX virðist telja að spilling á Íslandi byrjaði ekki fyrr en á árinu 2009. Friðbjörn Orri Ketilsson skrifaði pistil um bréfasendingu Egils Helgasonar til Transparency International. Í bréfinu vakti Egill athygli á því að eitthvað hlyti að vera athugavert við matsaðferðir TI þar sem Ísland hafi iðullega lent ofarlega á lista þeirra yfir lönd þar sem spilling væri lítil. Atburðir síðasta árs hafa sýnt að þetta var kannski ekki hárrétt hjá þeim. Friðbjörn Orri telur að Egill hafi verið of fljótur á sér þar sem skýrsla TI fyrir árið 2009 sé ekki enn komin út. Sem sagt, spillingin hófst þá bara á árinu 2009, eða hvað?

Þetta finnst Friðbyrni Orra greinilega ekki nógu mikil gagnrýni því hann sér sig knúinn til að gagnrýna lýtalausa ensku Egils líka.

Og þar með hefur AMX: Fremsti Fréttaskýringarvefur Landsins afgreitt Egil Helgason.


Forseti hvers?

bullBullarar reyna að telja okkur trú um að forseti leiðtogaráðsins verði forseti Evrópusambandsins. Það er engin, og verður engin, forseti Evrópusambandsins.
mbl.is Keppnin um forseta ESB harðnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband