Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
16.12.2009 | 16:52
Bullandi Hanna Birna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2009 | 17:37
Bullandi fátækt í Svíþjóð?
B&G styðja sínar fyllyrðingar með greiningu á meðaltekjum, "neysluvenjum" og lífsgæðum. Hvað varðar tekjugreininguna vekur það verðskuldaða athygli að þeir segja ekkert um tekjuskiptingu, en mikill munur er þar á milli BNA og Evrópu og ekki batnar það þegar skoðuð eru einstök ríki í BNA. Eftir situr þessi greining B&G á "neysluvenjum". Þeir deila með lesendum tölum sem sýna það að meðal Bandaríkjamaðurinn eyðir miklu meiru en Evrópubúinn. Aftur - ekkert um það hvernig þessar neysluvenjur dreifast - bara að meðalmaðurinn (sem er auðvitað aldrei til) eyðir vissri upphæð.
Svo kemur þetta skemmtilega - Greining B&G á neysluvenjum byggist ekki bara á því hvað meðalmaðurinn eyðir, heldur sýna þeir okkur líka að Bandaríkjamenn hafa miklu meira af tækjum og tólum en Evrópubúar. Vandamálið er h.v. að hjá B&G er ísskápur bara ísskápur og hann er annaðhvort til staðar eða ekki. Gögn þeirra um tækjaeign gefa enga vísbendingu um það hvernig viðkomandi fékk tækið (keypti hann það, fann hann það, fékk hann það gefins eða fylgir það bara leiguíbúðinni, e.o. er vaninn með ísskápa hér í BNA). S.s. þessi gögn um tækjaeign segja í raun lítið um neysluvenjur.
En þetta er ekki það besta í skýrslunni. Best er að skv. B&G er öll þessi tækjaeign mælikvarði á lífsgæðum. Það er alla vega tvennt að þessu. Fyrst, gögnin segja ekki neitt um gæði tækisins. Virkar ísskápurinn? Er þetta rafmagns ísskápur? Ég veit ekki neitt. Hitt er að ég er ekki sannfærður um að tækjaeign sé trúverðugur mælikvarði á lífsgæðum. Ég myndi halda að ef við ætluðum að mæla lífsgæði myndum við taka með í reikninginn hluti e.o. aðgengi að heilbrigðisþjónustu og góðri menntun o.þ.h. En ætli það sé ekki bara vitfirrti sósíalistinn í mér?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2009 | 21:11
Mogginn flæktur í eigin bullvef
Van Rompuy fyrsti forseti ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.11.2009 | 17:39
Bíbí bullar líka
13.11.2009 | 15:11
Bullað í hringnirhringnirh...
Úff! Mig svimar eftir að hafa hlustað á viðtal við Bjarna Benediktsson á Pressunni:
Það er ekki um neitt að semja...
Ja, við skulum sjá hvað kemur út úr samningaviðræðunum...
Það kemur ekkert gott út úr þessu...
Það er ekki hægt að segja neitt fyrr en samningaviðræðum er lokið...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2009 | 14:46
Bullandi niðurskurður
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2009 | 14:06
Síbull á mbl.is
Merkilegt að fjölmiðill eins mbl.is sem einu sinni naut virðingar þjóðar skuli nú nota aðstöðu sína til að ljúga að lesendum aftur og aftur. Það er ekki og verður ekki forseti ESB. Í vikunni verður forseti leiðtogaráðsins kosinn.
ESB fær forseta í næstu viku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2009 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.11.2009 | 14:55
Bullað í eyður
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2009 | 13:16
Um ESB - bull, bull og meira bull
Það er ekki nema von að íslensk umræða um ESB skuli vera á svo lágu plani sem raunin er þegar fréttaflutningur um sambandið byggist á jafnmiklu bulli og finnst í frétt Heimis Más Péturssonar um Lissabon sáttmálann á Vísir.is í dag. Helsta bullið:
- "Ný embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar..." - Forsetaembætti Framkvæmdastjórnarinnar (e. The Commission) hefur verið til síðan 1957 þegar Framkvæmdastjórnin var stofnuð. Lissabon sáttmálin stofnar nýtt forsetaembætti leiðtogaráðsins.
- "Ný stjórnarskrá..." - Evrópusambandið hefur aldrei haft stjórnarskrá og tilraun til þess að innleiða stjórnarskrá fór út um þúfur þegar aðildarlönd höfnuðu fyrri útgáfu af Lissabon sáttmálanum sem hefði innleitt stjórnarskrá.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2009 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2009 | 15:04
AMX býr til nýtt land
AMX hefur búið til nýtt land, Evruland, til að þurfa ekki að benda á að atvinnuleysi í löndum evrusvæðisins er frá 3,3% og upp í 18,1%.